Leita í fréttum mbl.is

Barnamorðingjar á meðal vor

Nú þegar búið er að úthluta kvóta vegna hreindýraveiða og við blasir að fretað verði úr hólkum á dýrin er nauðsynlegt að allir geri sér grein fyrir að byssur eru líka notaðar til að drepa börn. Þessvegna er mjög líklegt að hreindýraveiðimenn séu barnamorðingjar. Barnamorðingjar eru þeir sannarlega og ég hvet lögregluna til að fylgjast grannt með þeim og hvet líka hóteleigendur, ekki síst bændur og þeirra samtök, til að neita þessum barnamorðingjum um hæli í þeirra húsum. Að þessir vesölu menn skuli voga sér að láta sér detta í hug að fara austur og veifa sóðalegum hólkum sínum! Alþingismenn eiga að samþykkja lög þar sem þessi barna- og kvennamorðingjar eru bannaðir með öllu og úthýst frá landinu. Borgarstjórn Reykjavíkur á að samþykkja ályktanir þar sem þessir barna-, kvenna-, og fjöldamorðingjar eru fordæmdir. Við viljum sko enga skíthæla hér sem gera ekki það sem er fallegt og göfugt og heilbrigt samkvæmt því sem ég, ég og ég tel og veit að er öllum fyrir bestu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 114024

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband